Ósk um leyfi fyrir fánum við gistihúsið Egilsstöðum

Málsnúmer 201709096

Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 78. fundur - 11.10.2017

Hulda Elísabeth Daníelsdóttir, fyrir hönd Gistihússins Egilsstöðum óskar eftir að fá að setja upp fána á ljósastaura við heimreiðina.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd gerir ekki athugsemdir við áformin.

Nefndin bendir á að leita beri samþykkis eigandi ljósastauranna og landeiganda fyrir áformum þessum.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.