Úthlutun úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða í mars 2017

Málsnúmer 201703073

Atvinnu- og menningarnefnd - 50. fundur - 20.03.2017

Fyrir liggur niðurstaða úthlutunar úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða frá 15. mars s.l. Fljótsdalshérað sótti um styrk til fjögurra verkefna en fékk úthlutað styrk til eins verkefnis, vegna Rjúkanda, kr. 2.736.000. Nefndin fagnar þessu framlagi sem er mikilvægt vegna mikillar fjölgunar ferðamanna og álags á svæðið.

Að öðru leyti lagt fram til kynningar.