Staða atvinnulóða í Fellabæ lögð fyrir Umhverfis- og framkvæmdanefnd til umræðu.
Umhverfis- og framkvæmdanefnd felur Skipulags- og byggingarfulltrúa að vinna málið áfram. Jafnframt er óskað eftir því að fyrir næsta fund verði lögð fyrir skýrsla um stöðu lóðamála á iðnaðar- og athafnasvæðum á Egilsstöðum.
Lagt er fyrir erindið Atvinnulóðir í Fellabæ. Á síðasta fundi Umhverfis- og framkvæmdanefndar var samþykkt að fela Skipulags- og byggingarfulltrúa að vinna að skýrslu um stöðu lóðamála á iðnaðar- og athafnasvæðum á Egilsstöðum, skýrslan yrði lögð fyrir næsta fund Umhverfis- og framkvæmdanefndar.
Meðfylgjandi er skýrsla um stöðu lóðamála á iðnaðar- og athafnasvæðum á Egilsstöðum.
Umhverfis- og framkvæmdanefnd felur Skipulags- og byggingarfulltrúa að vinna málið áfram.
Jafnframt er óskað eftir því að fyrir næsta fund verði lögð fyrir skýrsla um stöðu lóðamála á iðnaðar- og athafnasvæðum á Egilsstöðum.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.