Umsókn um breytingu á rekstrarleyfi vegna sölu gistingar/ Lyngholt

Málsnúmer 201702078

Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs - 252. fundur - 01.03.2017

Fyrir liggur umsagnarbeiðni frá Sýslumanninum á Austurlandi vegna umsóknar um rekstarleyfi til sölu gistingar að Lyngholti (Kaldá) á Völlum í flokki II.

Fram kemur að byggingarfulltrúi veitir jákvæða umsögn og sömu leiðis Heilbrigðiseftirlitið.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarstjórn veitir jákvæða umsögn og staðfestir jafnframt að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsókn lýtur að, sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segir til um.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.