Vinabæjarmót Egilsstöðum 10-12.ágúst 2017.

Málsnúmer 201607017

Bæjarráð Fljótsdalshéraðs - 349. fundur - 11.07.2016

Fyrir liggur að næsta vinabæjarmót í þeirri norrænu vinabæjarkeðju sem Fljótsdalshérað á aðild að, verður á Egilsstöðum í ágúst á næsta ári.
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að senda vinabæjunum upplýsingar um dagsetningu mótsins og kalla eftir staðfestingu á mætingu.