Tónlistarskólinn í Fellabæ/starfsemi skólaárin 2012-2013 og 2013-2014

Málsnúmer 201305145

Fræðslunefnd Fljótsdalshéraðs - 186. fundur - 27.05.2013

Drífa Sigurðardóttir, skólastjóri Tónlistarskólans í Fellabæ, gerði grein fyrir starfsemi skólans á skólaárinu 2012-2013. 80-90 nemendur voru við nám við skólann í vetur og með skólastjóra sinntu 8 kennarar kennslu við skólann í rúmlega 3 stöðugildum. 2 nemendur luku áfangaprófum við skólann í vor. Nánast öll kennsla fer fram á skólatíma grunnskólans eða í beinu framhaldi af honum. Áætlanir gera ráð fyrir nokkuð svipuðu umfangi starfseminnar á næsta skólaári.