Bæjarráð Fljótsdalshéraðs - 230

Málsnúmer 1304003

Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs - 176. fundur - 17.04.2013

Til máls tóku: Gunnar Jónsson, sem kynnti fundargerðina og lagði fram drög að bókunum. Eyrún Arnardóttir sem lýsti yfir vanhæfi sínu við afgreiðslu liðs 2.22. Aðrir sem tóku til máls: Gunnar Jónsson sem ræddi lið 2.22, Jónas Guðmundsson sem bar upp fyrirspurn varðandi lið 2.22, Gunnar Jónsson sem svaraði fyrirspurn vegna liðar 2.22, Sigrún Blöndal sem ræddi lið 2.7, 2.10 og 2.15.

Fundargerðin staðfest.