- Stjórnsýsla
- Þjónusta
- Mannlíf
Haldnir verða tónleikar í Tónlistarskólanum í Fellabæ miðvikudaginn 28. febrúar klukkan 18. Fram koma nemendur bæði í rythmiskri og klassískri tónlist og flytja fjölbreytta tónlist frá ýmsum tímum. Bæði verður boðið upp á einleik, samspil og söngatriði.
Það eru allir velkomnir og aðgangur er ókeypis.