- Stjórnsýsla
- Þjónusta
- Mannlíf
Leikfélag ME setur upp um þessar mundir söngleikinn „Wake me up before you go go“- söngleik með sítt að aftan. Sýningin er eftir Hallgrím Helgason og er í leikstjórn Árna Grétars Jóhannssonar. Frumsýnt verður í Valaskjálf 16. febrúar næstkomandi..
Sýningin er í raun ferðalag aftur í tímann þar sem axlapúðar, fótanuddtæki og sódastreamtæki voru aðal málið. Drengur ferðast aftur í tímann til að reyna að gera framtíð sína bærilegri, en auðvitað hefur það ófyrirséðar afleiðingar. Nánar um sýninguna hér á vef ME.
Miðapantanir fara fram á lme@me.is. Miðaverð er 3000 kr., grunnskólabörn, NME aðilar og eldri borgarar greiða 2500 kr.
Auglýstar sýningar eru:
16. febrúar kl. 20
18. febrúar kl. 15 og kl. 20
21. febrúar kl. 20
23. febrúar kl. 20
24. febrúar kl. 18
Lokasýning 25. febrúar kl. 20