- Stjórnsýsla
- Þjónusta
- Mannlíf
Boðað er til sameiginlegs framboðsfundar allra framboða á Fljótsdalshéraði vegna sveitarstjórnarkosninga sem fram fara 26. maí næstkomandi.
Framboðsfundurinn verður haldinn í Egilsstaðaskóla mánudaginn 21. maí klukkan 20:00. Þar munu forsvarsmenn framboðanna kynna áherslumál sín og einnig munu þeir svara spurningum fundarmanna varðandi málefni sveitarfélagsins.
Bent skal á að utan kjörfundaratkvæðagreiðsla fer fram á sýsluskrifstofunni Lyngási 15 á auglýstum opnunartíma hennar. Einnig verður hægt að kjósa utan kjörfundar á Bókasafni Héraðsbúa virka daga frá 16. maí til og með 25. maí, milli klukkan 15:00 og 18:00.
Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs