Breyting á aðalskipulagi Vopnafjarðarhrepps og deiliskipulag Þverárvirkjunar, vinnslutillögur.

Málsnúmer 202006068

Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 135. fundur - 24.06.2020

Sveitarstjórn leggur hér fram tillögu að breytingum á aðalskipulagi Vopnafjarðarhrepps 2006-2026. Lagðar eru fram tillögur að tveimur breytingum samhliða. Breytingarnar eru vegna fyrirhugaðrar Þverárvirkjun og lagningu Vopnafjarðarlínu 1 í jörð yfir Hellisheiði.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd gerir ekki athugasemd við áform sem koma fram í breytingartillögunni

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.