Forvarnadagur á Fljótsdalshéraði 2018 - styrkbeiðni

Málsnúmer 201803148

Íþrótta- og tómstundanefnd - 40. fundur - 04.04.2018

Fyrir liggur styrkbeiðni frá Árna Pálssyni vegna Forvarnardags á Fljótsdalshéraði árið 2018.

Íþrótta- og tómstundanefnd leggur til að forvarnardagur fyrir unglinga á Fljótsdalshéraði, sem stýrt er af starfsmönnum félagsmiðstöðvar, verði styrkt um kr. 100.000 sem tekið verði af lið 0689.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.