Umsókn um rekstrarleyfi fyrir sölu íbúðagistingar /Finnsstaðir 1a

Málsnúmer 201706051

Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs - 259. fundur - 21.06.2017

Fyrir liggur umsagnarbeiðni frá Sýslumanninum á Austurlandi vegna umsóknar HS ferðaþjónustu um rekstrarleyfi fyrir sölu gistingar án veitinga í flokki II á Finnsstöðum

Fyrir liggur jákvæð umsögn frá byggingarfulltrúa og Heilbrigðiseftirliti.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarstjórn veitir jákvæða umsögn og staðfestir jafnframt að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsóknin lýtur að, sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segir til um.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.