Hreinn Halldórsson kominn í Heiðurshöll ÍSÍ

Hreinn Halldórsson við val á íþróttamanni árssins 2018
Hreinn Halldórsson við val á íþróttamanni árssins 2018

Þann 29. desember á síðasta ári var Hreinn Halldórsson útnefndur í Heiðurshöll ÍSÍ. Þetta var gert í hófi Íþróttamanns ársins og er Hreinn átjándi einstaklingurinn sem ÍSÍ útnefnir í höllina. Fljótsdalshérað óskar Hreini til hamingju með þennan heiður.

Á heimasíðu Íþrótta- og ólympíusambands Íslands kemur eftirfarandi fram um Hrein: „Hreinn Halldórsson er fæddur árið 1949 og hóf fljótlega að leggja stund á kúluvarp. Árangur hans vakti snemma athygli og gaf Ómar Ragnarsson honum viðurnefnið, „Strandamaðurinn sterki“ en það viðurnefni átti eftir að festast við Hrein. Árið 1976 var Hreinn kjörinn Íþróttamaður ársins í fyrsta sinn, en það ár bætti hann Íslandsmetið í kúluvarpi og keppti á Ólympíuleikunum í Montreal. Hann hlaut þá 79 stig af 80 mögulegum í kjörinu á Íþróttamanni ársins. Árið 1977 vann Hreinn sitt fræknasta afrek þegar hann varð Evrópumeistari innanhúss í San Sebastian á Spáni. Þar kastaði hann kúlunni 20,59 metra og skákaði meðal annars Geoff Capes, margföldum Evrópumeistara og Vladislaw Komar, pólska Ólympíumeistaranum frá 1972. Hreinn varð um leið fyrsti Íslendingurinn til að verða Evrópumeistari í frjálsíþróttum í 27 ár. Sama ár bætti Hreinn Íslandsmetið í kúluvarpi þegar hann kastaði 21,09 metra á móti í Stokkhólmi, met sem stóð í þréttán ár. Hreinn var vitaskuld valinn Íþróttamaður ársins 1977 og hlaut nafnbótina í þriðja sinn árið 1979. Það ár átti hann sjötta besta afrek í heiminum þegar hann varpaði kúlunni 20,69 metra. Á Ólympíuleikunum í Moskvu árið 1980 hafnaði Hreinn í 10. sæti. Hreinn lagði kúluna á hilluna árið 1982. Hreinn var um tíma einn þekktasti strætisvagnastjóri Reykjavíkur en hefur síðustu áratugi verið búsettur á Egilsstöðum þar sem hann hefur haft umsjón með íþróttamannvirkjum á Egilsstöðum og í Fellabæ.

Það er ÍSÍ mikill heiður að útnefna Hrein Halldórsson í Heiðurshöll ÍSÍ.“

Hér eru nokkrar myndir frá ferli Hreins, fengnar af heimasíðu ÍSÍ