Viðgerðir á Lagarfljótsbrúnni hafnar

Brúin verður einbreið og ljósastýrð á meðan verið er að vinna að viðgerð.
Brúin verður einbreið og ljósastýrð á meðan verið er að vinna að viðgerð.

Vegagerðin er að byrja á viðgerðum á gólfi brúar yfir Lagarfljót. Ætlunin er að skipta út slitgólfi og neðra gólfi eftir þörfum.

Á meðan framkvæmdum stendur verður brúin einbreið á þeim kafla sem verið er að vinna á og umferð verður ljósastýrð. Áætlað er að skipta um 20-50 m lengd af gólfi í einu og færa sig þannig eftir brúnni. Verktími er háður veðurfari og getur dregist fram á mitt sumar.

Hugsanlegt er að verkið stöðvist yfir hörðustu vetrarmánuði og verður þá brúin tvíbreið á meðan.

Vegfarendur eru beðnir um að sýna tillitssemi og taka tillit til aðstæðna.